Spiral Dansflokkurinn leitar að kraftmiklum og skapandi dönsurum/listamönnum fyrir starfsárið 2010/2011.
Prufur verða haldnar í Borgarleikhúsinu þann 6. september 2010 kl. 17:30. Til að sækja um vinsamlegast fyllið út umsóknarskjal sem finna má undir „hafa samband“.
Ef einhverjar spurningar kvikna hikið þá ekki við að hafa samband við Unni Gísladóttur - unnur@spiral.is eða Gianluca Vincentini - gianluca@spiral.is
Spiral Dansflokkurinn auglýsir eftir hæfileikaríkum danshöfundum til að setja upp nýtt og framúrstefnulegt dansverk fyrir flokkinn á starfsárinu 2010 – 2011.
Umsóknir eru opnar öllum yfir 20 ára aldri.
Þeir sem hafa áhuga á samstarfi með flokknum, vinsamlegast sendið inn DVD-disk með sýnishorni af verkum ykkar ásamt ferilskrá til:
Gianluca Vincentini
Artistic Director
Spiral Dansflokkur
Eskihlíð 16
105 Reykjavik
Ísland
Að öðrum kosti getið þið sett sýnishorn af verkum ykkar inn á YouTube og sent hlekk á myndbandið ásamt ferilskrá á gianluca@spiral.is
Einnig skal fylgja með skjal með hugmyndum um hugsanlegt nýtt verk fyrir flokkinn. Spiral Dansflokkurinn hefur störf í byrjun september 2010.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 18. Júní 2010. Frekari upplýsingar veitir Gianluca Vincentini.
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur sýningarrýmið Norðurpóllinn þar sem Spiraldansflokkurinn sýnir verkið ÓRA um þessar mundir, verið lokað tímabundið. Af þessum sökum falla niður tvær fyrirhugaðar sýningar, í kvöld, fimmtudaginn 25. mars og næstkomandi sunnudagskvöld, 28. mars. Haft hefur verið samband við alla sem áttu miða á sýningarnar og fá þeir endurgreitt. Sýningarnar verða þó settar upp hið fyrsta, og hvetjum við ykkur til að fylgjast með á spiral.is fyrir nánari upplýsingar um nýjar dagsetningar.